Veriate og TGC Capital Partners í samstarf

Íslenska sprota­fyr­ir­tækið Ver­ia­te ehf. sem þróar at­huga­semda- og skor­kerfið Speak­ness fyr­ir fjöl­miðla, hef­ur gengið frá sam­starfs­sam­ingi við fjár­fest­ing­ar­fé­lagið TGC Capital Partners sem er fjar­fest­ing­ar­arm­ur Gateway group. Fjár­fest­ing TGC Capital Partners ger­ir Ver­ia­te kleift að fjölga for­rit­ur­um fyr­ir Speak­ness en próf­an­ir á for­rit­inu eru þegar hafn­ar hjá Nú­tím­an­um.is.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu um sam­starfið.

TGC Capital Partners kem­ur inn sem kjöl­festu­fjár­fest­ir og hlut­hafi. Þessi fjár­fest­ing er mik­il­væg fyr­ir Ver­ia­te í þeirri fjár­mögn­un­ar­lotu sem hófst í byrj­un júlí. Með fjár­fest­ing­unni fylg­ir einnig aðgang­ur að ráðgjöf frá Gateway Group, til dæm­is í sölu- og markaðsáætl­un­um og tækni­ráðgjöf á alþjóðavísu.

„Í fjár­fest­ing­unni felst því viður­kenn­ing á aðferðafræði Ver­ia­te í nálg­un sinni á at­huga­semda- og skor­kerfi Speak­ness sem er sér­stak­lega hugsað til að styðja við vandaða fjöl­miðlun og virka og hátt­vísa þátt­töku les­enda,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Fyrsta fjár­fest­ing TGC Capital Partners hér á landi.

Fjár­fest­ing­in er sú fyrsta sem TGC Capital Partners ger­ir á Íslandi. 

“Við hjá Gateway Group höf­um unnið að sta­f­ræn­um lausn­um fyr­ir mjög stóra fjöl­miðla og fjár­fest­ing­in í Ver­ia­te er sú fyrsta á Íslandi. Það eru mjög áhuga­verð tæki­færi á Íslandi, við kom­um inn með teng­ing­ar og þekk­ingu til þess að kom­ast inn á alþjóðamarkað. Þá er jafn­framt hægt að tryggja mikla kostnaðar­hagræðing­ur þegar not­ast er við alþjóðlegt vinnu­afl,” seg­ir Ingi Björn Sig­urðsson, fjár­fest­ing­ar­stjóri fé­lags­ins

Gateway Group, sem stofnað var árið 1997, hef­ur höfuðstöðvar í Indlandi og Hollandi. Sam­steyp­an rek­ur um 20 fyr­ir­tæki og á hlut í yfir 60 öðrum. Hún er með starf­semi í sex­tán lönd­um í fimm heims­álf­um.

Ingvar Örn Ingvars­son, fram­kvæmda­stjóri og einn stofn­enda Ver­ia­te ehf., legg­ur áherslu á ein­stakt gildi sam­starfs­ins:

“Fag­leg­ur stuðning­ur og bak­land TGC Capital Partners og Gateway Group er ein­stak­ur í ís­lensku at­vinnu­lífi enda er um nýja nálg­un á ís­lensk­um fyr­ir­tækja­markaði að ræða,” seg­ir Ingvar. “Sam­steypa Gateway Group er skuld­laus með öllu, með yfir tutt­ugu Fortu­ne 500 viðskipta­vini, 2300 starfs­menn og núna einnig með fyrsta ís­lenska fyr­ir­tækið, sprota­fyr­ir­tækið Ver­ia­te ehf, á meðal viðskipta­vina og sam­starfsaðila.”