Ákærður fyrir að hafa banað dóttur sinni

Embætti héraðssak­sókn­ara hef­ur gefið út ákæru vegna mann­dráps á hend­ur mann­in­um sem er grunaður um að hafa banað dótt­ur sinni, hinni tíu ára Kolfinnu Eld­eyju Sig­urðardótt­ur, við Krýsu­vík­ur­veg í sept­em­ber.

„Hon­um er gefið að sök að hafa banað dótt­ur sinni,“ seg­ir Karl Ingi Vil­bergs­son, sak­sókn­ari hjá embætti héraðssak­sókn­ara, aðspurður.

Lögreglan að störfum á vettvangi.

Gæslu­v­arðhald fram­lengt

Gæslu­v­arðhald yfir mann­in­um hef­ur sömu­leiðis verið fram­lengt. 

Í dag eru 12 vik­ur síðan hann var hneppt­ur í gæslu­v­arðhald. Sam­kvæmt lög­um um meðferð saka­mála er aðeins heim­ilt að vista grunaða í gæslu­v­arðhald í 12 vik­ur án þess að ákæra sé gef­in út gegn þeim.

Málið þekkja les­end­ur lík­lega vel en þjóðin var sleg­in óhug þegar lög­regl­unni var til­kynnt um lík 10 ára gam­all­ar stúlku skammt frá Krýsu­vík­ur­vegi.

Lög­regl­an greindi frá því síðar að faðir stúlk­unn­ar væri grunaður um að hafa banað henni en hann hafði haft sam­band við lög­regl­una og vísað á líkið.